• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 28. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Ásgarðslaug í Garðabæ opnar á ný í dag, sumardaginn fyrsta

ritstjorn by ritstjorn
19. apríl 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Ásgarðslaug opnar á ný eftir endurbætur í dag, sumardaginn fyrsta 

Endurbætur á sundlauginni í Ásgarði og rýmum innandyra er ein stærsta framkvæmdin sem hefur verið í gangi hjá Garðabæ á þessu og síðasta ári.  Íbúum er þökkuð sú biðlund sem þeir hafa sýnt á meðan laugin var lokuð.  

Miklar endurbætur

Öll yfirborðsefni á á baðklefum og sundlaug hafa verið endurnýjuð.  Nýir heitir pottar hafa verið byggðir með nuddstútum undir yfirborðinu, nýr kaldavatnspottur var byggður sem og vað- og setlaug með barnarennibraut.  Gufubaðið hefur verið endurnýjað og nýjar útisturtur settar upp fyrir utan. 

Útiklefar hafa verið endurnýjaðir og í inniklefum karla og kvenna eru nýjir klefar fyrir fatlað fólk.  Allar sturtur hafa verið endurnýjaðar. Ný girðing kemur utan um allt sundlaugarsvæðið og í nýju vaktherbergi verður fullkomið eftirlits- og myndavélakerfi sem eykur mjög öryggi sundlaugargesta.

Innandyra var gólf í danssal lagað og rými opnað við hlið salarins þar sem þrekaðstaða almennings flyst upp úr kjallara.  Kjallari var jafnframt stækkaður til að koma hreinsibúnaði fyrir.

Sundlaugin opnar kl. 10 í dag, sumardaginn fyrsta

Klukkan 10 í dag, opnar Ásgarðslaug á ný fyrir almenning við hátíðlega athöfn.  Boðið verður upp á tónlistaratriði innandyra og hressingu við sundlaugarbakkann.  Ókeypis aðgangur verður í laugina þennan dag og út helgina til og með 22. apríl.  Verið velkomin í sund! 

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lífið eftir framhjáhald og daður á samfélagsmiðlum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Teitur Björn Einarsson færir ítarleg rök gegn stjórnarfrumvarpi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vændiskonur frömdu vopnað rán

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?