• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Formenn stjórnarflokkanna ákveða að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður

Nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Formenn stjórnarflokkanna eru sammála um eftirfarandi atriði í tengslum við sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór í mars. Við sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum er gerð rík krafa um gagnsæi, jafnræði og ítarlega upplýsingagjöf til almennings. Ljóst er að framkvæmd sölunnar stóð ekki að öllu leyti undir væntingum stjórnvalda, m.a. um gagnsæi og skýra upplýsingagjöf.
Nýtt fyrirkomulag er boðað til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum

Í yfirlýsingu þeirra segir jafnframt: Þá hafa komið upp spurningar, álitamál og gagnrýni um framkvæmd sölunnar sem fór fram sem nauðsynlegt er að rannsaka og upplýsa almenning um.

Ríkisendurskoðun hefur þegar hafið úttekt á því hvort salan hafi samrýmst lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Þá hefur fjármálaeftirlit Seðlabankans hafið rannsókn á tilteknum þáttum tengdum sölunni.

Komi fram þörf fyrir frekari rannsóknir þegar niðurstöður Ríkisendurskoðunar og Seðlabankans liggja fyrir mun ríkisstjórnin beita sér fyrir slíku á vettvangi Alþingis. Þeir annmarkar sem í ljós hafa komið við undirbúning og framkvæmd sölu á eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum hafa leitt í ljós þörfina fyrir endurskoðun á lagaumgjörð og stofnanafyrirkomulagi.

Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þar verður lögð áhersla á ríkari aðkomu Alþingis og að styrkari stoðum verði skotið undir að tryggja gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Frumvarp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er.

Ekki verður ráðist í frekari sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka að sinni. Þegar ný löggjöf liggur fyrir mun ákvörðun um mögulega sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verða tekin fyrir á Alþingi. Ríkisstjórnin leggur hér eftir sem hingað til áherslu á óbreytt eignarhald ríkisins á hlut sínum í Landsbankanum.

Traust og gagnsæi verður að ríkja um sölu á eignum ríkisins. Almenningur á skýra og óumdeilda kröfu um að allar upplýsingar séu uppi á borðum um slík áform, markmið þeirra og áhrif.

Hlutafjárútboð Íslandsbanka og skráning á markað í fyrra skilaði markmiðum stjórnvalda, svo sem eins og dreifðu eignarhaldi og fjölbreytni í eigendahópnum. Þá hefur mikil aukning á verðmæti fjármálafyrirtækja í ríkiseigu undanfarið ár styrkt stöðu ríkissjóðs til að gera enn betur og fjárfesta til framtíðar.

Ríkisstjórnin hefur haft það leiðarljós að ávinningur af eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum og sölu þeirra sé nýttur í þágu almennings. Meðal annars með því að nýta hann með beinum hætti til uppbyggingar innviða í almannaþágu eða til að styrkja stöðu ríkissjóðs til að veita mikilvæga þjónustu.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?