Í nógu hefur verið að snúast hjá lögreglunni í morgun en frá því klukkan fimm í morgun til ellefu voru skráð þrjátíu lögreglumál.
Tilkynnt var m.a. um bifreið út í Elliðavatni, á vatnsverndarsvæði. Starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins komu á vettvang og var bifreiðin dregin á brott með kranabifreið. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir um málið að svo stöddu.
Umræða