• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Menningarnótt – Samfélagslöggurnar verða í Hljómskálagarðinum frá kl. 14-18

Menningarnótt – Samfélagslöggurnar verða í Hljómskálagarðinum frá kl. 14-18

Börn yngri en 16 ára verða færð í athvarf fyrir ungmenni séu þau úti eftir lögboðinn útivistartíma

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. ágúst 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nú þegar Menningarnótt er fram undan, eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga. Lögreglan vill t.d. sérstaklega minna vegfarendur á að virða þær lokanir sem verða settar upp á hátíðinni og fara eftir leiðbeiningum þeirra sem verða við umferðarlokanir.

Enn og aftur er fólk hvatt til að nýta sér strætó og hinir, sem ætla að nota einkabílinn, til að leggja löglega. Almennt fargjald gildir í strætó á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, en frítt far er eftir flugeldasýningu og það ættu gestir á hátíðinni endilega að nýta sér. Jafnframt verður strætó með skutlþjónustu, sem ekur frá Laugardalshöll um Borgartún og Hlemm að Hallgrímskirkju og til baka. Strætóskutlan, það er frítt í hana, verður á ferðinni fram yfir miðnætti, eða til kl. 1.

Lögreglan vill enn fremur brýna það sérstaklega fyrir foreldrum að skilja börn sín ekki eftir í miðbænum þegar dagskránni lýkur með flugeldasýningu annað kvöld. Lögreglan mun taka hart á drykkju unglinga og vonast eftir góðri liðveislu foreldra í því. Börn yngri en 16 ára verða færð í athvarf fyrir ungmenni séu þau úti eftir lögboðinn útivistartíma samkvæmt barnaverndarlögum svo og þau ungmenni yngri en 18 ára, sem eru undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímugjafa.

Minnum á þjónustusíma Reykjavíkurborgar, 411 1111, en hann verður opinn á Menningarnótt frá kl. 8.30 – 23.

Venju samkvæmt verður lögreglan með töluverðan viðbúnað á Menningarnótt, en vakin er sérstök athygli á því að samfélagslöggur verða í Hljómskálagarðinum frá kl. 14-18. Þær verða í tjaldi rétt sunnan við Hljómskálann og er fólk hvatt til að líta þar við. Með þeim verður enn fremur lögreglumaður í umferðardeild, ásamt lögreglubifhjóli, og er um að gera að heilsa upp á hann í leiðinni og skoða bifhjólið!

Góða skemmtun á morgun – njótum saman sem fjölskylda og verum góðar fyrirmyndir. Hlökkum til að eiga frábæra Menningarnótt saman.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?