• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Útvíkkun aðgerða til annarra málefnasviða vekur athygli

Formenn norrænu sendinefndanna að Syðra Langholti (f.v.) Erik Slottner, stjórnsýsluráðherra (Svíþjóð), Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Anna Kaisa, sveita- og byggðamálaráðherra (Finnland), Ole Gustav Narud, aðstoðarráðherra (Noregur), Brandur Franklín Karlsson, deildarstjóri (Grænland), Christina Holm Davidsen, fulltrúi (Færeyjar) og Natasha Voss Plum, sérfræðingur (Danmörk).

Útvíkkun aðgerða til annarra málefnasviða vekur athygli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. október 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Útvíkkun aðgerða nýrrar sveitarstjórnaráætlunar til málefnasviða annarra ráðuneyta vakti athygli norrænna ráðherra og helstu norrænna sérfræðinga á sviði sveitarfélaga á samráðsfundi ráðherranna á Flúðum í liðinni viku. Aðgerðaáætlun stefnumótunarinnar geymir meðal annars aðgerðir í þágu fólks með fötlun, ungra barna og innflytjenda.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknar

Á fundinum kynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, nýjungar í þingsályktunartillögu um endurskoðaða stefnu og aðgerðaáætlun í sveitarstjórnarmálum.

Þar kom fram að aldrei hefði verið leitað jafn víðtæks samráðs við íbúa, sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila um málefni sveitarstjórnarstigsins og gert hefði verið við undirbúning stefnumótunarinnar.

„Ráðuneytið brást meðal annars við ákalli hagsmunaaðila um umbætur í þjónustu við tiltekna hópa með því að efna til samráðs við önnur ráðuneyti um umbótaverkefni í þágu ungra barna, barnafjölskyldna, fólks með fötlun og innflytjenda,“ sagði hann.

Sigurður Ingi bætti við að raunar væri einnig lögð áhersla á almennar umbætur á sviði þjónustu í áætluninni. „Við erum að ýta úr vör fyrstu samræmdu mælingunni á ánægju fólks með þjónustu einstakra sveitarfélaga og munum nýta niðurstöðurnar til umbóta, m.a. með kynningum á fyrirmyndarþjónustu á milli sveitarfélaga. Með sama hætti felur aðgerðahluti áætlunarinnar í sér átak til að eyða út svokölluðum gráum svæðum í þjónustu ríkis og sveitarfélaga og skilgreina lágmarksþjónustu.“

Hann sagði að ein helsta áskorun sveitarfélaganna fælist í viðbrögðum við mikilli fólksfjölgun í landinu. Aldrei hafa fleiri flust til landsins frá upphafi mælinga og árið 2022 eða ríflega 11.500 manns. „ Bregðast þarf við þessari fjölgun með aukinni þjónustu og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í samræmi við rammasamning ríkisins við sveitarfélögin,“ sagði Sigurður Ingi meðal annars í þessu sambandi.

Aðrar umræður á fundinum snerust meðal annars um hversu langt væri rétt að ganga í jöfnun tekna milli sveitarfélaga án þess að draga úr frumkvæði sveitarstjórna til þess að stuðla að hagkvæmni í rekstri, jafnvægi milli faglegrar stjórnsýslu og íþyngjandi regluverks og aðgerðir til að hindra misnotkun í velferðarþjónustu.

Eftir fundinn brugðu norrænu ráðherrarnir sér ásamt öðrum þátttakendum í heimsókn í hesthús Sigurðar Inga Jóhannssonar og Elsu Ingjaldsdóttur, eiginkonu hans, að Syðra Langholti og vöktu íslensku hestarnir mikla lukku. Einnig kynntu þátttakendur sér starfsemi Friðheima og heimsóttu Þingvelli á heimleiðinni.

Samráðsfundir norrænna ráðherra á sviði sveitarstjórnarmála eru haldnir árlega. Næsti fundur norrænna ráðherra á sviði sveitarstjórnarmála fer fram í Danmörku að ári.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?