Hækkaðu greiðslubyrðina!
Öryrkjabandalag Íslands stóð fyrir gjörningum fyrir utan höfuðstöðvar viðskiptabankanna þriggja. Bandalagið hefur undanfarið staðið fyrir gjörningnum undir nafninu Blanka.
Þetta kemur fram í tilkynningu, þar sem kemur fram að útsendarar Blanka hafi varpað merki félagsins á höfuðstöðvar bankanna í þeim tilgangi að breiða út boðskap Blanka um alla borg og land allt.
„Þessi gjörningur stafar reyndar ekki af samkeppni Blanka við banka hér á landi. Blanki er nefnilega ekki raunverulegur heldur herferð á vegum ÖBÍ réttindasamtaka til að vekja athygli almennings og stjórnvalda á vondum kjörum fatlaðs fólks, skorti á húsnæðisöryggi og skertu aðgengi þess að heilbrigðisþjónustu.“
Segir ÖBÍ að það sé staðreynd að örorkulífeyrir á Íslandi sé of lágur. Staðreynd sé að stór hópur öryrkja neyðist til að borga 51 til 75 prósent útborgaðra tekna í húsnæðikostnað og að nærri helmingur þeirra þurfi að neita sér um læknisþjónustu af fjárhagsástæðum.
„Félagar í aðildarfélögum ÖBÍ eru um 40.200 talsins og sennilega eiga landsmenn allir einhvern að sem tilheyrir þessum hópi. Fatlað fólk er alls konar og á í viðskiptum við alls konar banka. Hvar annars staðar er betra að benda á hve margir eiga lítið en þar sem almenningur geymir það (litla) sem hann á, í bönkunum?“ spyr ÖBÍ í tilkynningunni. – https://blanki.is/
„Við vonum að samfélagið allt geti tekið undir þennan málstað, að stjórnvöld bregðist við af krafti og við eigum von á að bankarnir taki þessari litlu ljósasýningu vel og styðji málstaðinn ÖBÍ réttindasamtök krefjast þess að stjórnvöld hækki örorkulífeyri um 12,4 prósent án tafar.“
ÖBÍ fékk meðal annars Tik-Tok stjörnur til liðs við sig til að breiða út boðskapinn.
@olafurjohann123 jæja framdi risa blankarán , hvað get ég gert næst ? Hækkað um 12.4%?