Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Almari Yngva Garðarssyni, 29 ára. Almar Yngvi er 190 cm á hæð, grannur, dökkhærður og með skeggrót. Hann er sennilega klæddur í hvíta hettupeysu, svörtu 66 vesti og gráum íþróttaskóm.
Síðast er vitað um ferðir hans í Hafnarfirði milli kl. 02 og 03 síðastliðna nótt. Almar gæti verið á bifreiðinni HUX90 sem er grár Chevrolet Spark bílaleigubíll. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Almars eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112.
Discussion about this post