Af gefnu tilefni langar mig að gera smá tilraun til að fræða ykkur um kjör öryrkja. Þ.e.a.s. hversu lágar tekjur öryrkja eru í raun. Það er ótrúlega algeng mýta að öryrkjar hafi það nú bara býsna gott. Sum rangtúlka fyrirliggjandi gögn, meðvitað eða ómeðvitað, en svo eru önnur sem beinlínis reyna sitt ítrasta til að gaslýsa öryrkja og allan almenning um kjör þessa þjóðfélagshóps.
Það eru meira að segja til aðilar sem halda því fram að örorkugreiðslur flestra öryrkja frá TR séu hærri en lágmarkslaun. Því fer að sjálfsögðu víðsfjarri eins og þið vitið vonandi flest. Hér eru gögn geta hjálpað ykkur að svara þessari vitleysu þegar þið verðið hennar vör.
(Fyrir ykkur sem ekki vitið þá þýðir „miðgildi“ að helmingur hópsins sem um ræðir er fyrir ofan miðgildistöluna og helmingur fyrir neðan.)
Á síðasta ári voru það bara öryrkjar í efstu tíund réttinda frá TR sem rétt slefuðu yfir lágmarkslaun. Athugið að það er að meðtöldu meðlagi sem ætti ekki að teljast með í svona samanburði þar sem allir einstæðir foreldrar fá (eða geta fengið) allavega einfalt meðlag með hverju barni frá TR ef ekki frá meðlagsgreiðanda.
Minni á að lágmarkslaunin í fyrra voru 335 þús. kr. á mánuði.
Jafnvel þó skoðaðar séu heildartekjur öryrkja, þ.e. allar tekjur og réttindi meðtalin, þ.m.t. atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur, og meðlag (aftur) þá er samt tæplega helmingur öryrkja með heildartekjur undir lágmarkslaunum.
Þá er gott að muna að fólk er yfirleitt ekki langtímum saman á lágmarkslaunum. Oftast eru þetta byrjunarlaun í atvinnugrein og fólk vinnur sig frekar hratt upp af þeim.
Flestir fatlaðir, þ.e. fólk sem með 75% örorkumat, er með örorkugreiðslur sem megintekjur það sem eftir er eða til 67 ára aldurs, þegar það vaknar einn góðan veðurdag og er ekki lengur fatlað heldur „bara“ gamalt. Þó staðan hafi líklega batnað örlítið á þessu ári fyrir þau sem eru með allra lægstu greiðslurnar frá TR þá munar ekki miklu. Tölurnar fyrir þetta ár eru eðli málsins samkvæmt ekki komnar inn á mælaborðið.
Ritstjórn 8. september, 2021Sjá nánar hér: https://www.tr.is/try…/tr-i-tolum/maelabord/ororkulifeyrir