• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

1,7 milljarða styrkir til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun.

1,7 milljarða styrkir til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. desember 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Mikill uppgangur hefur verið í orku- og umhverfistengdum nýsköpunarverkefnum á landsbyggðinni sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur tekið þátt í á þessu kjörtímabili. Á síðustu fimm árum hafa verkefni sem tengjast Eimi á Norðurlandi, Orkídeu á Suðurlandi og Bláma á Vestfjörðum hlotið styrki upp á ríflega 1,7 milljarða króna.

Alls hafa bakhjarlar verkefnanna lagt til um 680 milljónir króna, en aðrir styrkir nema rúmlega einum milljarði. Þeir eru af ýmsu tagi, en þeir stærstu eru Horizon- og Life-styrkir frá Evrópusambandinu og styrkir frá innlendum sjóðum á borð við Orkusjóð, Lóu og Matvælasjóð. Samstarfsverkefnin eiga það sameiginlegt að stuðla að orkutengdri nýsköpun og orkuskiptum með því að byggja á styrkleikum, auðlindastraumum og áhuga hvers svæðis fyrir sig.

460 milljónir á Norðurland

Eimur er samstarfsverkefni á Norðurlandi sem hefur það markmið að bæta nýtingu auðlinda með sjálfbærni, nýsköpun og verðmætasköpun að leiðarljósi. Bakhjarlar þess eru umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorka og Orkuveita Húsavíkur. Alls hafa komið 460 milljóna króna styrkir til verkefnisins síðan 2020.

770 milljónir til verkefna á Suðurlandi

Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Landbúnaðarháskóla Íslands. Tilgangur Orkídeu er að stuðla að þróun orkutengdrar matvælaframleiðslu og hringrásarhagkerfis á Suðurlandi. Styrkir til Orkídeu síðustu fjögur ár nema 770 milljónum króna.

Tæpur hálfur milljarður á Vestfirði

Blámi er samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu. Meginmarkmið Bláma er að styðja við og efla nýsköpun og þróun orkuskiptaverkefna með því að auka hlut vistvæns eldsneytis, vetnis og rafeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Alls nema styrkir til verkefna Bláma 480 milljónum króna á fyrrnefndu tímabili.

Hliðarstraumar fléttaðir inn í verðmætasköpun á Austurlandi

Þá ber að nefna fjórða samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Eygló á Austurlandi, sem hóf starfsemi í byrjun árs. Meginmarkmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hliðarstrauma og flétta þá inn í nýja verðmætasköpun. Bakhjarlar eru umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Austurbrú og sveitarfélög á Austurlandi; Múlaþing, Fjarðabyggð, Fljótdalshreppur og Vopnafjarðarhreppur.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við höfum lagt á það áherslu á þessu kjörtímabili að styrkja og styðja við nýsköpunarstarfsemi um land allt og það er ánægjulegt að fylgjast með eftirtektarverða árangri þessara verkefna, sem ekki bara styðja við betri orkunýtingu og aukna verðmætasköpun heldur skapa líka áhugaverð störf  fyrir sérfræðimenntað fólk sem flutt hefur getað aftur í heimabyggð eftir að hafa fengið starf við sitt hæfi.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vistaður í fangaklefa eftir umferðaróhapp

    Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    135 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?