• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 15. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórn Íslands – „Computer says no“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rangur og villandi málflutningur

Afnám krónu-á-móti-krónu skerðingar er ein af þeim úrbótum sem hægt er að framkvæma strax ef vilji er fyrir hendi, án þess að farið verði í kerfisbreytingar eða heildarendurskoðun á almannatryggingalögunum ljúki. Þessi afstaða ÖBÍ hefur lengi verið ljós. Henni hefur verið haldið fram gagnvart stjórnvöldum og almenningi um margra ára skeið.
Núverandi ríkisstjórn rígheldur í kröfu um að þessi óréttláta skerðing, sem tæplega verður kölluð annað en kerfisbundið ofbeldi, verði ekki afnumin nema ÖBÍ fallist á að taka upp svokallað starfsgetumat og breiði faðminn á móti nýju framfærslukerfi almannatrygginga. Það er ekki til umræðu að afnema óréttlætið. Það er bara „computer says no“.
Í þessu ljósi alveg sérstaklega sorglegt að hlusta á villandi og rangan málflutning í ræðustóli Alþingis þar sem ÖBÍ er beinlínis sagt leggjast gegn afnámi krónu-á-móti krónu skerðingarinnar.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir

Þessu hafnar Öryrkjabandalag Íslands. Krónu-á-móti-krónu skerðingu á að afnema strax án tillits til annarra breytinga. Hún ein og sér heldur þúsundum fjölskyldna í fátæktargildru og hana á að afnema eina og sér. ÖBÍ undirbýr nú málsókn á hendur ríkinu í því skyni að aflétta þessu kerfisbundna ofbeldi.
Stjórnvöld settu á stofn samráðshóp um breytt framfærslukerfi almannatrygginga. Formaður ÖBÍ tekur virkan þátt í starfi hópsins. Nú eru komin fram lokadrög að skýrslu hans. ÖBÍ hefur tekið þá afstöðu að skrifa ekki undir skýrsluna. Það er gert af þeirri ástæðu að lausir endar í því starfi eru einfaldlega of margir. Mannsæmandi afkoma er ekki tryggð. Krónu-á-móti-krónu skerðing verður ekki afnumin skilyrðislaust. Ekki er tekið á samspili lífeyriskerfisins og almannatrygginga, vinnumarkaðsmálin óklár, og svona má áfram telja.
Alþýðusamband Íslands tekur undir sjónarmið ÖBÍ og skrifar heldur ekki undir skýrslu starfshópsins. Þetta upplýsti forseti ASÍ á málþingi sem kjarahópur ÖBÍ stóð fyrir í gær: Eru öryrkjar fólkið með breiðu bökin? Þar benti hún á að hvorki opinber né almennur vinnumarkaður býður upp á störf með lágu starfshlutfalli. Það er í reynd algjör forsenda þess að hugmyndir um starfsgetumat geti gengið upp.
„Krónu á móti krónu“ skerðing hittir það fólk verst sem hefur lægstu framfærsluna í íslensku samfélagi og ef stjórnvöld vilja vinna gegn fátækt, ætti afnám hennar ekki aðeins að vera forgangsmál. Því ætti að vera löngu lokið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?