Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum.
Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd hér á landi eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þar með talið íslenskunámi.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir gleðiefni að Vestmannaeyjar taki á móti fólki á flótta. „Verkefnið er samfélagslega mikilvægt og það er ánægjulegt að sjá Vestmannaeyjabæ komi inn í það af fullum krafti.“
„Við hjá Vestmannaeyjabæ erum ánægð með þetta samkomulag þar sem það rammar inn með skýrum hætti þá þjónustu sem við veitum flóttafólki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Það er mikil samstaða um það hér í Eyjum að sýna samfélagslega ábyrgð og við viljum gera vel varðandi móttöku og í öllu utan um haldi fyrir fólk sem er á flótta.“
Þetta er níundi samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Reykjavík reið á vaðið og síðan Árborg, Akureyri, Reykjanesbær, Hornafjörður, Hafnarfjörður, Múlaþing og Mosfellsbær.
Vestmannaeyjabær undirritaði einnig samning sem felur í sér að sveitarfélagið mun þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ.e. fólk sem bíður eftir svari við verndarumsókn sinni. Vinnumálastofnun sér um þjónustu við þann hóp fólks hér á landi og sá samningur var því undirritaður af Írisi Róbertsdóttur fyrir Vestmannaeyjabæ og Gísla Davíð Karlssyni, sviðsstjóra hjá Vinnumálastofnun.
Við undirritunina.
Íris Róbertsdóttir og Gísli Davíð Karlsson, sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun.
Staðsetning sveitarfélaga sem undirritað hafa samninga um samræmda móttöku flóttafólks.