Um kl. 23.00 föstudagskvöldið 19. apríl urðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þess varir að norska línuskipið Fiskenes, sem hefur veiðiheimild innan Íslensku fiskveiðilögsögunnar, var búið að leggja línu inn fyrir mörk hryggningastoppsvæðisins sem er í gildi um þessar mundir samkvæmt reglugerð nr. 30 frá 2005. Samkvæmt henni eru allar veiðar bannaðar frá 12. apríl til og með 21. apríl innan ákveðinna marka suður og vestur af landinu.
Skipstjóra Fiskenes var gert að taka inn alla línuna og halda að því búnu til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem lögregla tæki á móti skipinu og tæki skýrslu af skipstjóra. Skipið kom til hafnar í Vestmannaeyjum um kl. 1500 í dag en áður hafði Landhelgisgæslan farið fram á að útgerð skipsins leggði fram viðeigandi tryggingu vegna hugsanlegra sektargreiðslna eftir að búið verður að taka kæru vegna þessara meintu óNorskt skip staðið að ólöglegum veiðumlöglegu veiða fyrir. Sú trygging hefur verið lögð fram og staðfest þannig að ef skipstjóri Fiskenes gengst við broti við skýrslutöku er ekkert því til fyrirstöðu að skipið haldi til veiða á ný.
Nú fyrir stundu barst Landhelgisgæslunni sú tilkynning frá lögreglunni í Vestmannaeyjum að skýrslutöku væri lokið og að játning lægi fyrir. Ljóst er að ekki er um ásetningsbrot að ræða heldur láðist skipstjóra og útgerð Fiskenes að kynna sér reglur um fiskveiðar. Skipið hélt því úr höfn upp úr kl. 1800.