• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 25. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Landsvirkjun og MýSilica semja um uppbyggingu og nýsköpun við Mývatn

ritstjorn by ritstjorn
20. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Kísilríkar snyrtivörur úr jarðhitavatni 

Landsvirkjun og MýSilica hafa undirritað samning um rannsóknir, þróun og framleiðslu á kísilríkum húð- og snyrtivörum úr jarðhitavatni virkjana á starfssvæði Landsvirkjunar á Norðurlandi. Byggð verður upp aðstaða sem mun nýtast fyrir nýsköpun og fjölnýtingu og verður MýSilica fyrsta sprotafyrirtækið til að nýta aðstöðuna.
Verkefnið gengur út á að vinna steinefnaríkt – og þá sérstaklega kísilríkt – hráefni úr jarðhitavatni sem fellur til við orkuvinnslu. Þetta hráefni verður svo nýtt til þess að framleiða náttúrulegar húðvörur.
Markmið samningsins er að auka verðmætasköpun úr þeim efnum sem verða til við orkuvinnslu Landsvirkjunar og hafa hingað til ekki verið nýtt sérstaklega.  Verkefnið bætir þannig nýtingu auðlinda og skapar tækifæri til uppbyggingar og nýsköpunar fyrir nærsamfélagið.
MýSilica er nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og markaðsetningu á húðvörum. Hjá MýSilica starfa sérfræðingar sem hafa að baki margra ára reynslu í nýtingu auðlinda og framleiðslu á verðmætum úr skiljuvatni jarðvarmavirkjana. Verkefnið gengur út á að vinna steinefnaríkt og þá sérstaklega kísilríkt hráefni úr jarðhitavatni sem síðan verður nýtt til þess að framleiða náttúrulega húðvörur.
Fida Abu Libdeh, stofnandi MýSilica:
„Maður gat ekki annað en heillast af fegurð náttúrunnar á Norðurlandi og sérstaklega á Mývatni. Við sjáum tækifæri til nýsköpunar, aukinnar nýtingar á náttúrulegum auðlindum og sköpun á verðmæti í sátt við náttúruna. Verkefnið er búið að vera í vinnslu í nokkur ár og nú fögnum við þessum stóra áfanga. Við erum þakklát fyrir stuðninginn sem við fengum fyrir norðan. Við hlökkum til að hefja sköpun á verðmætum með Landsvirkjun sem öflugan samstarfsaðila okkar.“
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Við hjá Landsvirkjun fögnum því að fá að taka þátt í uppbyggingu sprota- og nýsköpunarstarfs á Norðurlandi. Við sjáum mikil tækifæri í frekari nýtingu þeirra strauma sem falla til í starfsemi okkar. Nýsköpunarstarfsemi á borð við þetta spennandi verkefni MýSilica getur orðið mikilvægur þáttur í  hringrásarhagkerfinu og stuðlað að aukinni sjálfbærri þróun og bættri nýtingu auðlindarinnar.“
Mynd: Vegna COVID-19 veirufaraldsins var undirritunarfundurinn haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Ofar til vinstri er Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar, við hlið hennar er Hörður Arnarson forstjóri. Neðar til vinstri er Fida Abu Libdeh, stofnandi MýSilica og við hlið hennar er Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri. Á minni mynd má sjá Harald Hallgrímsson, forstöðumann viðskiptaþróunar og sölu, en aðrir viðstaddir voru Helgi Jóhannesson, yfirmaður lögfræðimála, Gylfi Már Geirsson, yfirmaður orkukaupa og Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur.

  • Ríkið afli tekna og auki velferð

    Þjóðarsátt um okurvexti?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Óánægð með rannsókn á eignatengslum í sjávarútvegi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?