Það helsta úr dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 þann 19 apríl til klukkan 05:00 þann 20. apríl. Þegar þetta er ritað gista þrír aðilar fangaklefa. Alls eru tuttugu mál bókuð í kerfum lögreglu. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum.
Lögreglustöð 1:
- Ökumaður kærður fyrir ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum.
- Tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 104. Reyndist tjónvaldur ölvaður við akstur. Hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð í venjubundið ferli.
- Tilkynnt um umferðaróhapp í miðbæ Reykjavíkur en þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann ók á aðra bifreið, tré og að lokum húsvegg. Engin slys á fólki en töluvert tjón eftir.
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fluttur á lögreglustöð í venjubundið ferli.
- Tilkynnt um hópslagsmál í miðbæ Reykjavíkur. Flytja þurfti tvo á slysadeild til aðhlynningar. Málið í rannsókn.
Lögreglustöð 2:
- Tilkynnt um tvo menn til ama í hverfi 220 en þar höfðu þeir meðal annars verið að ógna vegfarendum. Mennirnir fundust og voru þá búnir að róta í bifreið. Handteknir og fluttir á lögreglustöð.
Lögreglustöð 3:
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fluttur á lögreglustöð í venjubundið ferli.
- Tilkynnt um tvo aðila að hnupla úr söfnunargámum. Fundust á bifreið skammt frá. Málið í rannsókn.
- Aðili handtekinn grunaður um vopnalagabrot ásamt sölu og dreifingu fíkniefna. Málið í rannsókn.
Lögreglustöð 4:
- Lögregla og slökkvilið sent á forgangi vegna eldsvoða en kviknað hafði í út frá kertum sem voru lögð við arinn. Engar teljandi skemmdir og allir heilir á húfi.
Umræða