• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur við Úkraínu efst á dagskrá á fundi með varautanríkisráðherra Bandaríkjanna

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Kurt Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna

Stuðningur við Úkraínu efst á dagskrá á fundi með varautanríkisráðherra Bandaríkjanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. apríl 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hitti í dag Kurt Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, stuðningur við Úkraínu og málefni Miðausturlanda bar hæst á fundinum, sem og málefni norðurslóða og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Washington í sumar. Samskipti við Kína voru sömuleiðis til umræðu.

„Þetta var afar efnisríkt samtal um mál sem ber hæst á alþjóðavettvangi um þessar mundir, ekki síst mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu en þau mál hafa mjög verið í deiglunni hér í Washington í vikunni. Óhjákvæmilega ræddum við einnig um stöðu mála í Miðausturlöndum sem er mikið áhyggjuefni,” segir utanríkisráðherra.  

Samráð Íslands og Bandaríkjanna um efnahags- og viðskiptamál fór fram í Washington í síðustu viku og framundan er árlegt pólitískt samráð í Reykjavík. „Bandaríkin eru ein okkar nánasta samstarfs- og vinaþjóð og því er afar mikilvægt að eiga í reglulegum og góðum samskiptum við ráðamenn vestanhafs,” sagði Þórdís Kolbrún enn fremur.

Utanríkisráðherra fundaði í heimsókn sinni til Washington einnig með Íslandsvinahópi bandarískra þingmanna, svokölluðum Iceland Caucus, sem stofnað var til á síðasta ári. Tilgangur vinahópa á Bandaríkjaþingi felst einkum í því að skapa óformlegan samstarfsvettvang fyrir hóp þingmanna sem láta sig varða sérstaka málaflokka eða vináttu við tiltekin ríki. Þá hitti ráðherra öldungadeildarþingmanninn Deb Fischer en hún heimsótti Ísland síðasta haust til að kynna sér fjárfestingar og viðbúnað Bandaríkjanna.

Síðdegis í dag skrifaði Þórdís Kolbrún síðan undir nýtt samkomulag um aukin framlög Íslands til Hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund) sem er á forræði bandaríska utanríkisráðuneytisins. Þetta er fimmta árið sem Ísland leggur fé til sjóðsins sem beinir stuðningi sínum til frjálsra félagasamtaka sem vinna að mannréttindum hinsegin fólks. Robert Gilchrist skrifaði undir fyrir hönd utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna en Jessica Stern, sérlegur erindreki Bandaríkjaforseta í málefnum hinsegin fólks, var einnig viðstödd.

  • Frá undirritun nýs samkomulags við Hnattræna jafnréttissjóðinn (Global Equality Fund). - mynd
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    146 deilingar
    Share 58 Tweet 37
  • IKEA hætt í viðskiptum við Rapyd

    467 deilingar
    Share 187 Tweet 117
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?