Uppfært: Hjólið er fundið með hjálp Fréttatímans. En aðeins klukkustund eftir að fréttin af hjólinu var birt, þá höfðu hjón við Herjólfsgötu samband og sögðust líklega vera með hjólið á lóð sinni. Þjófurinn hafði stillt hnakkinn í hæstu stillingu og hjólað að heimili þeirra. Skilið hjól Æsu þar eftir fyrir utan og rænt hjóli sonar þeirra sem að er blátt að lit og hefur verið auglýst á Facebooksíðu Hafnarfjarðar. Vinsamlega tilkynnið hjólið til lögreglunnar ef að þið verðið vör við það. Drengurinn er tíu ára og saknar hjólsins mikið. Æsa þakkar öllum sem að hjálpuðu henni við að finna hjólið og er alsæl.
—————
Hún Æsa Sigurbjörg sem að býr í Prýðahverfinu í Garðabæ var sorgmædd í kvöld þegar að hún áttaði sig á því að búið var að stela nýja hjólinu hennar. Hún hafði safnað fyrir hjólinu sjálf, í eitt og hálft ár en það kostaði 55.000 krónur og var draumahjólið hennar
Æsa ætlaði að fara í hálftíma hjólatúr á hjólinu sínu fyrir kvöldmat en þegar að hún kom út, greip hún í tómt. Hjólið hafði staðið við eldhúsgluggann og m.a.s. bílar í hlaðinu og e.t.v. einhver heima.
Hún keypti hjólið sjálf í Hagkaup, þann 7. maí eða fyrir 13 dögum síðan. Hjólið heitir Julia og er 26 tommur að stærð og er hvítt.
Það er með ólíkindum hversu frakkir þessir þjófar eru að koma upp að heimili fólks um miðjan dag og ræna eignum sem að standa við hús.
Þjófnaðurinn hefur verið kærður til lögreglunnar og framleiðslunúmerið (serialnúmer) er skráð, þannig að ef að einhver hefur séð hjólið eða veit hver tók það, þá er best að hafa samband við lögregluna í síma 112.
Einnig ef að hjólið er boðið til sölu t.d. á netinu, þá er það góð regla að taka niður framleiðslunúmer og kanna hvort að um sé að ræða stolið hjól, hjá lögreglunni.
Þeir sem að taka áhættuna á að kaupa stolin hjól, tapa þeim fjármunum sem að hjólið kostaði, þegar að þau finnast.
Vinsamlega tilkynnið um hjólið til lögreglunnar ef að þið sjáið það og deilum endilega fréttinni.