BRAGGINN lifnar við
,,Eftirfarandi bókun og fyrirspurn um Nauthólsveg 100/Braggann lagði ég fram í skipulags- og samgönguráði á fundi sem var að ljúka
Verið er að sækja um leyfi til að breyta notkun, skráðri stærð og útliti Náðhússins á Nauthólsvegi 100/Bragginn. Reykjavíkurborg á byggingarnar á Nauthólsvegi 100 og búið er að gera upp Braggann fyrir um hálfan milljarð.
Náðhúsið komið í 47 milljónir
Búið er að skrifa 47 milljónir á náðhúsið en það stendur enn fokhelt. Ævintýri í kringum Braggan eiga sér engan endi.
Minnt er á að framúrkeyrsla og dularfull notkun á fjármagni sem reikningar voru skrifaðir fyrir á viðfangsefnið Nauthólsvegur 100, upp á fleiri hundruð milljónir eru nú til meðferðar hjá héraðssaksóknara og lögreglu.
2. Ef HR borgar breytingarnar stenst það þá framleigusamning Reykjavíkur til HR?
3. Hvað borgar HR í leigu fyrir allar húsaþyrpingarnar á mánuði til Reykjavíkur?
4. Hvað er áætlað að þessar breytingar kosti tæmandi talið?“
Hópur þjófa á minnst tveimur bílum stálu klósetti
https://gamli.frettatiminn.is/hopur-thjofa-a-minnst-tveimur-bilum-stalu-klosetti/