Hvað kostar þessi sirkús borgarbúa?
,,Þetta er svo mikið djók – í bréfinu segir orðrétt: “ Bein samskipti á milli umb. míns og borgarfulltrúans Vigdísar Hauksdóttur hafa verið afar takmörkuð.“
Hvernig í veröldinni á ég að geta lagt í einelti einhvern sem ég hitti ekki?
Eineltisdrottningin er að snúa sinni sök upp á mig – það eru loftfimleikar í hringleikahúsinu .“ Segir Vigdís Hauksdóttir um meint einelti sem að hún er vænd um.
Þá segir hún jafnframt um málið: ,, Hvað kostar þessi sirkús borgarbúa? Hvernig á ég að geta lagt í einelti konu sem ég hef nánasta aldrei hitt? Stríðshanskanum hefur enn á ný verið kastað – þetta er stríð embættismanna gegn lýðræðiskjörnum fulltrúum Eigi þeir eitthvað vantalað við mig – þá bendi ég þeim á lögformlegt ferli sem er dómstólaleiðin Ég er að íhuga mína stöðu á grunni meiðyrðalöggjafarinnar – borgarráðsfundur stendur yfir og eru nokkrir niðurlútir eftir eldræðu mína frá í morgun
Vigdís hefur vísað þessum ásökunum á bug og tók upp málið í borgarráðsfundi í dag þar sem að hún lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
1. Hvers vegna var borgarráð ekki upplýst um að búið væri að virkja eineltis- og áreitniteymi Ráðhúss/miðlægar stjórnsýslu, vegna meints eineltis borgarfulltrúa?
2. Fram kemur í bréfi eineltis- og áreitisteymi Ráðhúss/miðlægar stjórnsýslu að borgarráð hafi fundað 7. maí, en þá var enginn fundur. Hvernig stendur á því?
3. Er verið að vísa í borgarráðsfund sem haldinn var 9. maí s.l.?
4. Hvers vegna er talað um að borgarráð hafi samþykkt bráðabirgðaverkferil vegna kvartana starfsfólks Reykjavíkurborgar vegna framgöngu kjörinna fulltrúa, þegar einungis borgarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Vinstri grænna og Pírata greiddu tillögunni atkvæði en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá?
5. Hvar var erindisbréf eineltisteymisins lagt fram til samþykktar og kynningar?
6. Þarf ekki að samþykkja erindisbréfið í borgarráði?
7. Hver samið erindisbréfið?
8. Var málið svo hressilega undirbúið að daginn eftir samþykkt málsins var sent erindisbréf á eineltis- og áreitnisteymið?
9. Hvernig er hægt að halda því fram að ég hafi lagt skrifstofustjóra borgarstjóra og borgarritara í einelti þegar ég hef einungis hitt hana á tveimur eða þremur fundum?
10. Hvaða sérhæfðu og óháðu aðilar eiga að kanna og taka afstöðu til þeirra ásakana er fram kom í erindum Helgu Bjargar Ragnarsdóttur?
11. Hvaða siðfræðingur á að kanna og taka afstöðu til erindis Helgu Bjargar Ragnarsdóttur?
12. Hvað er áætlað að Reykjavíkurborg greiði í þessa þjónustu?
13. Er gert ráð fyrir því að Reykjavíkurborg greiði málskostnað í dómsmáli fyrir kjörinn fulltrúa, eins og borgin gerir fyrir embættismenn, þurfi hann að grípa til þess ráðs að verja mannorð sitt fyrir dómsstólum?
14. Hver var aðkoma borgarritara og borgarlögmanns í málinu?
15. Eiga þessir embættismenn ekki að gæta hagsmuna minna sem kjörins fulltrúa?