Brot 119 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 16. júní til mánudagsins 19. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka.
Á þremur sólarhringum fóru 22.605 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 78 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.
Umræða