Dagskrá Menningarnætur er senn á enda, en henni lýkur að venju með glæsilegri flugeldasýningu. Fjölmargir hafa lagt leið sína í miðborgina í dag og hafa hinir sömu skemmt sér vel og verið almennt til fyrirmyndar. Meðfylgjandi er mynd lögreglunnar frá tónleikunum við Arnarhól, en þar er búin að vera frábær stemning í kvöld.
Lögreglan biður alla að sýna tillitssemi og þolinmæði þegar halda á heimleiðis á eftir, en lögreglan mun gera sitt allra besta til að umferðin gangi vel fyrir sig.
Umræða