• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 28. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð

ritstjorn by ritstjorn
20. september 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Menningu breytt með handafli

Drífa Snædal formaður ASÍ

Hvað sem fjárlagafrumvarpi og fyrirhuguðum skattabreytingum líður þá er alveg ljóst að stóra baráttan næstu árin og áratugina verður sanngjörn dreifing okkar gæða. Miðstjórn ASÍ ályktaði á miðvikudaginn um fjárlagafrumvarpið undir fyrirsögninni „Sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð“. Það var stór sigur í vor að fá stjórnvöld til að fallast á þriggja þrepa skattkerfi þar sem hugmyndarfræðin er að létta sköttum af þeim tekjulægstu en í staðinn hækkar skattprósentan eftir því sem þú hefur meira aflögu. Við hefðum reyndar kosið ofurteknaskatt líka og hækkun fjármagnstekna.
Það má ekki gleyma hinni hliðinni á peningnum, sem er að fjármagna velferðina okkar, spítalana, menntakerfið og alla innviði. Einhver þarf að borga og það er sanngjarnt að þeir borgi sem eigi peninga. Það vantar því miður í frumvarpið og því er það áhyggjuefni hvernig á að fjármagna heilbrigðisþjónustuna okkar, sem nú þegar fær ekki nóg.
Annars var Ísland í kastljósi vikunnar hjá þeim sem berjast gegn ofbeldi með hinni risastóru ráðstefnu um #metoo og hvernig verður haldið áfram eftir byltinguna. Í #metoo byltingunni var raunveruleiki kvenna sýndur og sagt frá en þú þarf að halda áfram og byggja samfélag þar sem konur eru frjálsar undan ofbeldi og áreitni, hvort sem er heima, í almannarýminu eða á vinnustöðum. Einn þeirra snillinga sem komu hingað til lands á ráðstefnuna er Marie Clarke, baráttukona og formaður alþýðusambandsþings Kanada.
Hún sagði réttilega að verkalýðshreyfingin þyrfti að byrja á sjálfri sér auk þess að leggja ábyrgðina á herðar atvinnurekenda og stjórnvalda. Það þarf handafl til að breyta menningu og það þarf allar hendur uppá dekk. Enginn er undanskilinn og öll þurfum við að byrja næst okkur. Í mínu erindi lagði ég áherslu á samspil launa, valda og ofbeldis en ég er þess fullviss að til að vinna gegn ofbeldi þarf að vinna gegn valdaskipulagi, þar með talið launamisrétti.
Svo ég geri orð leiðarahöfundarins Alissu Quart að mínum: „Kynbundið ofbeldi þrífst í valdamisvægi. Það er miklu erfiðara að áreita jafningja. Því meira bil á milli valda og efnahags, þeim mun betra tækifæri til að nýta sér valdastöðuna og þeim mun meiri er freistingin.“
Góða helgi, Drífa

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lífið eftir framhjáhald og daður á samfélagsmiðlum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Teitur Björn Einarsson færir ítarleg rök gegn stjórnarfrumvarpi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vændiskonur frömdu vopnað rán

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?