• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áríðandi tilkynning frá viðbragsstjórn og farsóttanefnd Landspítala vegna Covid-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttarnefndar Landspítala var í dag, sunnudaginn 20. september, ákveðið að færa spítalann af óvissustigi á hættustig í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala. Upp hafa komið Covid-19 smit meðal starfsfólks sem kallar á sóttkví starfsfólks sem kann að hafa áhrif á starfsemi spítalans. Annars vegar er um að ræða smit í Skaftahlíð 24 þar sem skrifstofur og kennslurými eru til húsa og hins vegar í skurðlækningaþjónustu.
Umfangsmiklar skimanir fyrir Covid-19 fara fram vegna þessa í dag og er gert ráð fyrir að ríflega 200 starfsmenn verði í úrvinnslusóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir og hluti þeirra í hefðbundinni sóttkví. Ekki er gert ráð fyrir skerðingu þjónustu við sjúklinga að svo stöddu, en unnið er að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.
Eftirfarandi ákvarðanir taka gildi nú þegar.

  • 1. Algjör grímuskylda er á öllum starfsstöðvum Landspítala, nema þegar matast er og skal þá halda 2 metra fjarlægðarmörk. Inniliggjandi sjúklingar eru þó undanþegnir grímuskyldu.
    2. Alla fundi starfsfólks ber að halda með rafrænum hætti nema brýna nauðsyn beri til annars og gildir þá grímuskylda.
    3. Það starfsfólk sem getur sinnt störfum sínum að heiman skal gera það í samráði við sinn næsta yfirmann.
    4. Engin leyfi sjúklinga eru heimil.
    5. Aðeins einn gestur getur heimsótt hvern sjúkling á dag og allir gestir verða að bera grímu. Heimsóknartímar eru óbreyttir.

Á spítalanum eru nú ríflega 200 sjúklingar í eftirliti á Covid-19 göngudeild og 2 sjúklingar liggja á spítalanum vegna Covid-19 sýkingar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?