• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

122 tilkynningar um ofbeldisbrot í ágúst

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Skráð voru 904 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í ágúst og fjölgaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir ágúst 2022.

Tilkynningum um þjófnað fjölgaði á milli mánaða. Af þjófnaðarbrotum fjölgaði innbrotum mest á milli mánaða. Alls bárust 118 tilkynningar um innbrot í ágúst miðað við 85 tilkynningar í júlí. Það sem af er ári hafa þó borist um eitt prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali fyrir sama tímabil síðustu þriggja ára á undan.

Alls barst 122 tilkynning um ofbeldisbrot í ágúst og fjölgaði þessum tilkynningum lítillega á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði einnig á milli mánaða. Í ágúst var tilkynnt um 16 kynferðisbrot, er það þónokkur fækkun tilkynninga miðað við síðustu mánuði á undan. Það sem af er ári hafa verið skráð um 21 prósent færri kynferðisbrot á höfuðborgarsvæðinu samanborið við meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust 11 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í ágúst sem er fækkun á milli mánaða. Heilt yfir hafa borist um 34% færri beiðnir það sem af er ári miðað við síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði á milli mánaða en tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum voru álíka margar.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð í ágúst.  Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í mars voru skráð 746 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér: https://issuu.com/logreglan/docs/lykiltolur_2022_g_st

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?