• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

COVID-19: Samkomutakmarkanir og skólastarf frá 20. október

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í dag tóku gildi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími reglugerðanna er til og með 10. nóvember að undanskildum bráðabirgðaákvæðum um takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu sem gilda til 3. nóvember. Breytingar sem reglugerðirnar fela í sér frá fyrri takmörkunum eru raktar hér að neðan. Áfram er kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins hefur orðið sú meginbreyting að nándarmörk milli einstaklinga hafa verið aukin úr 1 metra í 2.
Takmarkanir utan höfuðborgarsvæðisins – helstu breytingar:
  • Nándarmörkmilli einstaklinga eru 2 metrar.
  • Skylt er að nota andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nándarmörk, m.a. í verslunum.
  • Á viðburðum er einungis heimilt að hafa 20 gesti í hólfi í hverju rými sem skulu sitja í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn.
  • Íþróttaiðkun sem ekki krefst snertingar, þar sem hægt er að virða 2 metra regluna og 20 manna nálægðarmörk er heimil, jafnt innan- og utandyra.
  • Þrátt fyrir 2 metra nálægðartakmörk eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en virða skal 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatakmörk er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ.
  • Engir áhorfendur mega vera á íþróttaviðburðum, hvorki innan- né utandyra.
  • Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir og fjöldi að hámarki 20 manns. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, eða stórra tækja, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.
Takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu – helstu breytingar:
  • Allt íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þ.m.t. skólasund sem krefst snertingar er óheimilt. Íþrótta- og tómstundastarf sem ekki krefst snertingar er því heimilt. Allt íþrótta- og tómstundastarf sem krefst ekki frekari blöndunar hópa en í skólastarfi er enn fremur heimilt, svo sem í frímínútum eða leikfimitímum í skólum.
  • Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir og fjöldi að hámarki 20 manns. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, eða stórra tækja, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar 
Reglugerð um 2. breytingu á reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?