Hugleiðingar veðurfræðings
Hægir vindar og víða léttskýjað í dag, en gengur í suðvestankalda með skúrum eða éljum norðvestan til eftir hádegi. Vakin er athygli á að vægu frost víða um land í morgunsárið og því geta leynst hálkublettir á götum og gangstéttum.
Á morgun myndast grunn lægð á Grænlandshafi og gengur í suðaustankalda með rigningu eða slyddu á vestanverðu landinu. Önnur og dýpri lægð nálgast á fimmtudag og hvessir þá talsvert úr eystri og rignir dálítil sunnan til. Hiti yfirleitt 1 til 6 stig að deginum.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg norðvestlæg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum síðdegis. Suðaustan 5-10 m/s og lítilsháttar rigning á morgun. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu
Hæg norðlæg eða breytileg átt, víða léttskýjað og vægt frost. Suðvestan 3-10 m/s og skúrir eða él NV til eftir hádegi og úti við NA-ströndina. Hiti 1 til 5 stig að deginum. Suðaustan 5-13 á morgun og dálítil rigning eða slydda öðru hvoru, en hægara og þurrt eystra með hita kringum frostmark.
Spá gerð: 20.10.2020 04:45. Gildir til: 21.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðlæg átt, 5-10 m/s og dálítil rigning eða slydda á vesturhelmingi landsins og hiti 1 til 6 stig. Hægari og bjartviðri eystra með hita kringum frostmark.
Á fimmtudag:
Gengur í suðaustan og austan 13-20 m/s með rigningu víða á landinu, hvassst syðst, en hægara og þurrt norðanlands og hlýnar í veðri.
Á föstudag:
Allhvöss eða hvöss austan- og norðaustanátt með talsverðri rigningu S- og A-lands, en annars úrkomuminna. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.
Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Útlit fyrir norðaustanhvassviðri, jafn vel storm með talsverðri rigningu víða á landinu, en úrkomuminna á V-landi. Fremur hlýtt í veðri.
Á sunnudag:
Stíf norðaustanátt NV-til, en annars mun hægari vindar og væta í flestum landshlutum. Áfram hlýtt í veðri.
Á mánudag:
Líklega norðanátt með éljum á N-verðu landinu, en bjartviðri syðra og kólnar heldur.
Spá gerð: 19.10.2020 19:57. Gildir til: 26.10.2020 12:00.