Samband ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir afturhaldssemi embætti landlæknis
Embætti landlæknis hefur lagst gegn frumvarpi um sölu lausasölulyfja í almennum verslunum. SUS gagnrýnir embættið fyrir mótstöðu við frumvarp sem miðar að aukinni heilsu og öryggi landsmanna.
Frumvarpið snýr að því að almennum verslunum verði heimilt að selja ólyfseðilsskyld lyf, á borð við væg verkjalyf, ofnæmislyf og magalyf. Í umsögn sinni vísar landlæknir sérstaklega í aukna notkun tauga- og geðlyfja hér á landi, sem er afskaplega villandi.
SUS fagnar því að leitað sé leiða til að tryggja framboð af nauðsynlegum lyfjum, sem nú er háð takmörkunum, og opna á frekari verðsamkeppni á markaðnum. Frumvarpið snýr ekki síður að aðgengi, en íbúar á landsbyggðinni þurfa oft á tíðum að ferðast langar vegalengdir til þess eins að nálgast væg verkjalyf. Opnunartímar og staðsetningar apóteka í núverandi horfi koma í veg fyrir að einstaklingar geti sótt sér nauðsynlegar vörur þegar þörf krefur, t.d. að næturlagi eða í fámennari byggðum landsins.
Að mati SUS er lítil hætta á að landsmenn fari að misnota Rennie bakflæðislyf og Strepsils munnsogstöflur vegna þess eins að þær fást í Hagkaup. Það hefur sannarlega ekki verið raunin í Svíþjóð, Danmörku og Noregi, þar sem slík sala er leyfð.
SUS hvetur því embætti landlæknis til að sýna framsækni og endurskoða afstöðu sína gagnvart ofangreindu frumvarpi. Á sama tíma skorar SUS á alla þingmenn að sjá í gegnum slíka afturhaldssemi og gera þetta frumvarp að lögum.