• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórnin gerir ekkert fyrir þá sem fá engar atvinnuleysisbætur vegna covid-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða sérstakt viðbótarálag á grunnbætur atvinnuleysistrygginga á næsta ári sem koma á til móts við þann stóra hóp sem á næstu mánuðum fellur út af tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Álagið hljóðar uppá 2,5% og kemur til viðbótar þeirri 3,6% hækkun sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.  Með þessu nemur heildarhækkun grunnbóta 6,2% og þær verða því 307.403 kr.  Athygli vekur að ríkisstjórnin gerir ekkert fyrir þá sem fá engar atvinnuleysisbætur en ríkisstjórnin ákvað að skerða tímabilið um hálft ár og þeir sem fá ekki vinnu í því ástandi sem nú er uppi, fá ekkert.

Hækkaðar greiðslur vegna framfærslu barna atvinnuleitenda verða framlengdar út næsta ár þar sem 6% viðbótarálag reiknast ofan á grunnatvinnuleysisbætur vegna framfærslu hvers barns, í stað 4% áður. Auk þess verður greidd  desemberuppbót til þeirra sem eru í staðfestri atvinnuleit sem hljóðar uppá rúmar 86 þúsund krónur.

Viðspyrnustyrkir

Með viðspyrnustyrkjum verður samfélagið betur viðbúið því þegar heimurinn opnast að nýju. Viðspyrnustyrkir eru beint framhald af tekjufallsstyrkjum og er þeim ætlað að aðstoða fyrirtæki við að viðhalda lágmarksstarfsemi meðan áhrifa faraldursins gætir. Úrræðið tekur til allra tekjuskattskyldra rekstraraðila sem verða fyrir a.m.k. 60% tekjufalli og gildir um alla rekstraraðila óháð rekstrarformi, það gildir þannig líka um einyrkja sem stunda atvinnurekstur á eigin kennitölu.

Fyrir rekstraraðila með tekjufall á bilinu 60-80%

  • Viðspyrnustyrkur getur orðið 400 þúsund kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi
  • Getur hæst orðið 2 milljónir króna

Fyrir rekstraraðila með tekjufall upp á 80%-100%

  • Viðspyrnustyrkur getur orðið 500 þúsund kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi
  • Getur hæst orðið 2,5 milljónir króna.

Styrkfjárhæðir taka mið af rekstrarkostnaði en geta þó ekki orðið hærri en það tekjufall sem varð á tímabilinu sem er undir.

Stuðningur við barnafjölskyldur

Skerðingarmörk í barnabótakerfinu verða hækkuð sem tryggir að þau fylgja þróun lægstu launa á vinnumarkaði. Þessi breyting skilar einstæðum foreldrum með tvö börn, með 350 þúsund til 580 þúsund krónur í tekjur á mánuði, 30 þúsund króna hækkun barnabóta á ári. Fjölskylda með samanlagðar tekjur upp á 700 til 920 þúsund krónur á mánuði fær 60 þúsund hærri barnabætur á næsta ári en ella vegna breytinganna.

Stuðningur við örorkulífeyrisþega og viðkvæma hópa

Greidd verður út 50 þúsund króna eingreiðsla til þeirra örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem eiga rétt á lífeyri á árinu fyrir 18. desember, til viðbótar við desemberuppbót sem jafnframt kemur til greiðslu í desember. Í upphafi næsta árs verða gerðar varanlegar breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga þegar dregið verður úr innbyrðis skerðingum sem skilar tekjulægstu örorkulífeyrisþegunum tæplega 8.000 króna viðbótarhækkun á mánuði umfram fyrirhugaða hækkun uppá 3,6% sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Heildarhækkun bóta almannatrygginga til tekjulægstu örorkulífeyrisþeganna verður því tæpar 20 þúsund krónur um áramót.

Þá verður ráðist í ýmsar mótvægisaðgerðir til að styrkja félagslega stöðu viðkvæmra hópa í heimsfaraldrinum og sett á laggirnar viðbragðsteymi um fjárhagsstöðu heimila með fulltrúum frá fjármálastofnunum, hagsmunasamtökum og umboðsmanni skuldara.

https://gamli.frettatiminn.is/03/11/2020/hja-mer-og-minum-verda-engin-jol/

Umræða
Share37Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Almenningi misboðið áratugum saman – Leiðrétt veiðigjöld aðeins brot af hagnaði

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?