• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skýr merki um landris í Svartsengi

Skýr merki um landris í Svartsengi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Um 700 jarðskjálftar hafa mælst nærri kvikuganginum frá miðnætti, stærsti 2,7 að stærð

Frá miðnætti í dag hafa um 700 jarðskjálftar mælst nærri kvikuganginum, sá stærsti 2,7 að stærð nærri Hagafelli. Frá því á föstudag (17. nóvember) hafa um 1500-1800 jarðskjálftar mælst á dag við kvikuganginn og stærsti skjálftinn M3,0 að stærð á föstudagsmorgun.

Nýjar gervitunglamyndir af Svartsengi og kvikuganginum ásamt öðrum gögnum voru til umræðu á samráðsfundi sérfræðinga Veðurstofunnar, Háskóla Íslands og almannavarna í morgun.

Á gervitunglamyndum sem sýna breytingar sem orðið hafa frá 18. – 19. nóvember má sjá skýr merki um landris í Svartsengi á sömu slóðum og landris hafði mælst áður en kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember. Þetta er í samræmi við það sem hefur sést á GPS stöðvum umhverfis Svartsengi og er ferli sem hófst strax í kjölfarið á kvikuhlaupinu 10. nóvember. Líkön sem reiknuð hafa verið út frá gervitunglamyndunum sýna að landrisið í Svartsengi er talsvert hraðara en áður en kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember. Almennt þegar kvikugangur myndast sígur land í miðju gangsins eins og við sjáum í Grindavík, en rís sitt hvoru megin við hann. Merki um landris í Svartsengi vegna kvikusöfnunar hefur sést í nokkurn tíma, en svo blandast inn í þær mælingar áhrif frá myndun kvikugangsins.

Það að nú sjáist skýr merki um landris í Svarstengi breytir hinsvegar ekki líkunum á því að það gjósi á kvikuganginum. Það er metið m.a. út frá því að jarðskorpan yfir kvikuganginum er miklu veikari heldur en jarðskorpan yfir landrisinu í Svartsengi en einnig liggur hún grynnra. Þannig að á meðan að ekki mælist mikil skjálftavirkni á svæðinu í Svartsengi eru ekki taldar miklar líkur á að gos komi upp þar, heldur miklu frekar yfir kvikuganginum þar sem kvikan á auðveldast með að komast upp á yfirborð.

Áframhaldandi landris við Þorbjörn í kjölfar myndunnar kvikugangsins, sýnir að við erum ennþá í miðri atburðarrás. Áfram þarf að gera ráð fyrir að þessi atburðarrás á svæðinu geti breyst með litlum fyrirvara. Veðurstofan, í góðu samstarfi við sérfræðinga Háskóla Íslands, mun halda áfram vakta svæðið eins vel og hægt er og stöðugt endurmeta og túlka þau gögn sem berast.

20-nov-vincent

COSMO-Skymed bylgjuvíxlmynd sem spannar 24 klukkustundir milli 18 og 19 nóvember kl. 06:41. Merki um landris sést í appelsínugulu/rauðu litunum í kringum Svartsengi sem gefur til kynna djúpa þenslu (>5 km).

18. nóvember kl. 14:40

Virknin við kvikuganginn er nánast óbreytt frá því í gær. Síðasta sólarhring hafa mælst um 1.700 skjálftar og síðan um miðnætti um 1.000 skjálftar. Stærsti skjálftinn síðan á miðnætti mældist 2,8 að stærð í Hagafelli 3.5 km NNA af Grindavík.

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?