Fylgi ríkisstjórnarinnar, Vinstri grænna og Framsóknar heldur áfram að lækka

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 39,0%, samanborið við 41,5% í síðustu könnun

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 20,0%, tæplega tveimur prósentustigum hærra en við mælingu MMR í nóvember. Mældist Samfylkingin með 14,4% fylgi, rúmu prósentustigi hærra en við síðustu mælingu en Miðflokkurinn mældist með 14,3% fylgi, tveimur og hálfu prósentustigi minna en við síðustu mælingu. Þá jókst fylgi Sósíalistaflokks Íslands um rúm 2 prósentustig og mældist nú 5,2% en fylgi Flokks fólksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 4,0%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 39,0%, samanborið við 41,5% í síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 20,0% og mældist 18,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,4% og mældist 13,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 14,3% og mældist 16,8% í síðustu könnnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,8% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,5% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,3% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,3% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,2% og mældist 3,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,0% og mældist 6,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,1% samanlagt.
1912 Fylgi
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar

  • 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar
  • 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar
  • 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (8,6%), myndu skila auðu (6,6%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,9%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma
1912 Fylgi tími
 
Stuðningur við ríkisstjórnina
1912 Studningur
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.014 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. desember 2019

Almennt um birtar niðurstöður kannana MMR
MMR birtir reglulega niðurstöður úr könnunum sem unnar hafa verið meðal almennings um málefni líðandi stundar. Kannanirnar eru jafnan unnar sem hluti af spurningavagni MMR og efnistök valin af starfsfólki MMR út frá þeim fréttum sem eru áberandi í umfjöllun þegar viðkomandi könnunin hefst. MMR birtir ekki fréttatilkynningar úr könnunum sem eru unnar fyrir aðra eða fjármagnaðar af öðrum. Kannanir MMR eru unnar samkvæmt siðareglum ESOMAR.
Umræða

Hæ!

Login to your account below

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?