• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bankarnir vilja peningana þína

Neytandi leggur ferjuflutningafélag

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. desember 2021
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa úrskurðaði nýlega að Smyril line þyrfti að endurgreiða neytenda 40.000 kr. vegna oftekinna gjalda við gerð farmbréfs. Vildi félagið innheimta 50.000 krónur, en við það sætti kvartandi sig ekki og fór því með málið fyrir kærunefndina, sem taldi 10.000 krónur vera sanngjarna upphæð og gerði félaginu að endurgreiða mismuninn.

Fram kemur í úrskurðinum, sem sjá má hér, að neytandinn hafi siglt með Smyril line frá Danmörku til Íslands fyrir um ári. Ferðin var liður í búferlaflutningum neytandans til Íslands. Með í ferð var bifreið hans, skráð í því landi hvar hann áður bjó. Eftir komuna til landsins sendi Smyril line neytandanum kröfu að upphæð 50.000 krónur vegna farmskrárgerðar sem hann greiddi til að forðast innheimtukostnað, með fyrirvara um endurgreiðslu að heild eða hluta. Eins og áður segir mat kærunefndin hæfilegt endurgjald fyrir þjónustuna 10.000 krónur. Bar því Smyril line að endurgreiða neytandanum 40.000 krónur.

Gerð farmbréfa krefst ekki mikillar vinnu, enda eru þau frekar einfaldar skýrslur og flest flutningafyrirtæki innheimta um eða undir 10.000 kr. fyrir slíka vinnslu. Það vissi neytandinn og sætti sig því ekki við fimmfaldan kostnað. Mál þetta sýnir svo ekki verður um villst mikilvægi þess að neytendur standi á rétti sínum. En einnig sýnir þetta hversu mikilvægt er að neytendur hafi skjóta og tiltölulega einfalda leið til að fá úrlausn mála sinna. Þá gerði neytandinn rétt í að greiða gjaldið með fyrirvara.

Eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp hafa Neytendasamtökin haft spurnir af fleirum sem hafa verið ofrukkaðir á sama hátt og hafa fengið endurgreitt 40.000 kr. eftir að hafa vitnað í úrskurð kærunefndarinnar. Neytendasamtökin hvetja aðra sem kunna að hafa verið ofrukkaðir af Smyril line að fara fram á endurgreiðslu.

Umræða
Share5Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?