Tilkynnt um tvo aðila sem tóku ófrjálsri hendi vörur úr verslun í miðborginni að verðmæti tæplega 300.000 kr. Málið í rannsókn.
Þá var tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi í tökum öryggisvarða við verslunarmiðstöð. Hann hafði stungið af frá reikningi og sýndi af sér ógnandi hegðun og var fluttur á lögreglustöð til vistunar í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn máls.
Óskað var aðstoðar í verslun í verslunarmiðstöð vegna aðila sem neitaði að bera sóttvarnargrímu.
Umræða