Lögreglan á Vestfjörðum varar við því að börn séu að leik á ótraustum hafís. ,,Þar sem Pollurinn í Skutulsfirði er ísilagður þessa dagana er tilefni til þess að minna á þá hættu sem getur skapast við leik á hafís. Mikilvægt er að foreldrar vari börn og unglinga við því að vera að leik á ótraustum ísnum, það þarf vart að ræða hvaða afleyðingar það getur haft í för með sér falli þau í gegnum þunnt íslagið. Verði einhver þó fyrir því óhappi að falla í gegnum ís er gott að hafa í huga þessi ráð sem Miðstöð Slysavarna Barna bendir á:
– Snúa þér að bakkanum og halla þér að ísnum.
– Teygja hendurnar uppá ísinn og sparka.
– Ekki standa upp þegar þú kemst uppá á ísinn. Liggðu á ísnum og rúllaðu þér frá gatinu.
– Aðstandendur ættu ekki að hlaupa út á ísinn því þá brotnar hann enn meir og þau detta líka í vatnið.
– Ef sá sem dettur kemst ekki upp úr vatninu án aðstoðar, skal kasta til hans reipi, stöng eða trjágrein og toga hann uppúr.
Aðilar kólna hratt sem falla í vatnið þegar kalt er í veðri og þarf því tafarlaust að hafa samband við Neyðarlínu og óska eftir aðstoð.
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær þegar lögreglumenn höfðu afskipti af unglingum við leik á ísnum.“