ÍAV afhenti 17. janúar 2020 síðustu 15 íbúðirnar af samtals 155 íbúðum, í sex blokkum auk bílakjallara, á Móavegi 2-12, til Bjargs íbúðafélags.
Þar með eru leiguíbúðir í eigu Bjargs sem komnar eru í útleigu orðnar 194 en í þeim búa núm um 440 einstaklingar. Næstu leiguíbúðir sem verða afhentar verða á Hallgerðargötu við Kirkjusand, í Þorlákshöfn, Guðmannshaga á Akureyri og Silfratjörn í Úlfarsárdal.
———–
Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd. Forsendur þess hve vel verkefnið hefur gengið, má rekja til árangursríks samstarfs við Bjarg, hönnuði verkefnisins, fjölda undirverktaka og birgja.