• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
21. janúar, 2021
0 0
Covid-19: Europol og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vara við eftirlíkingum af bóluefnum

 

  • Áfram rýming á húsum á Siglufirði
  • Áfram hættustig Veðurstofu Íslands á Siglufirði vegna snjóflóðahættu og óvissustig á Norðurlandi

Áfram er spáð snjókomu og vindi næstu daga á Norðurlandi.  Í dag féll snjóflóð  í Héðinsfirði, en ekki bárust tilkynningar um fleiri flóð.  Af þessum sökum verður áfram í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hættustig á Siglufirði með rýmingum. Óvissustig er á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu.  Íbúar sem rýmdu hús í gær fá að fara heim undir kvöld til þess að sækja hluti og huga að eigum sínum undir eftirliti lögreglu en fá ekki að dvelja þar.

Í dag tókst að opna Siglufjarðarveg og veginn um Ólafsfjarðarmúla, en honum verður aftur lokað kl 20:00 í kvöld vegna hættu á snjóflóðum. Búast má við truflunum á samgöngum á meðan þetta ástand varir og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með tilkynningum Vegagerðarinnar – Auk þess er vegurinn um Ljósavatnsskarð á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Þá var tilkynnt um að krapastífla hafi verið að myndast við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum og er fólk beðið um að hafa varan á sér þegar farið er um þann vegakafla.

Varðskip Landhelgisgæslunnar, Týr, er úti fyrir Eyjafirði og verður til taks á meðan hættuástand varir.

  • Á vefsíðu Veðurstofu Íslands má sjá spá um staðbundna snjóflóðahættu utan þéttbýlis og til fjalla: https://www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa/
  • Á vef Vegagerðarinnar má sjá allar upplýsingar um færð og ástand vega: https://www.vegagerdin.is/

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Lögreglan á Norðurlandi eystra, Veðurstofa Íslands og sveitarfélagið Fjallabyggð fylgjast áfram náið með þróun og stöðu mála.

Deila1TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Þakkar lífvörðum sínum fyrir að vera á lífi

    121 deilingar
    Deila 121 Tweet 0
  • Flótti úr Sjálfstæðisflokknum – Einokun og afturhald

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Íslendingar fái senda peninga heim í formi hlutabréfa

    131 deilingar
    Deila 131 Tweet 0
  • Óvinsælustu ráðherrar Íslands – Spillingarmál og tortryggni

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Manndráp – áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. mars

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?