• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 11. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

360 milljón krónur – Ísland eykur stuðning við Úkraínu ​

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. janúar 2023
in Erlent, Fréttir
A A
0

Ísland mun veita tveimur milljónum punda, eða rúmlega 360 milljónum króna, í sérstakan stuðningssjóð fyrir Úkraínu (International Fund for Ukraine) sem bresk stjórnvöld settu á laggirnar á síðasta ári.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um þetta á fundi ríkjahóps sem styður varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) sem haldinn var í Ramstein í Þýskalandi í dag.

Hópinn skipa 45 líkt þenkjandi ríki. Ísland hefur áður stutt við varnargetu Úkraínu gegnum þennan sama sjóð en einnig sjóði á vegum Atlantshafsbandalagsins og með stuðningi við hergagnaflutninga, sendingu á vetrarbúnaði og sprengjueyðingaþjálfun, svo fátt eitt sé nefnt.

„Ísland hefur leitað allra leiða til þess að leggja varnarbaráttu Úkraínu lið. Á fundinum hér dag var mikil samstaða og áhersla á að nú væri mikilvægur kafli í stríðinu og mikilvægt að þau sem vilja styðja Úkraínu liggi ekki á liði sínu. Það hefur sýnt sig að stuðningssjóðurinn sem við leggjum nú lið hefur reynst vel, þar eru ákvarðanir teknar hratt svo mikilvægur stuðningur berst hratt þangað sem þörfin á honum er mest. Jafnvel þó Íslendingar hafi ekki vopn eða skotfæri til að senda til Úkraínu þá getum við aðstoðað með öðrum leiðum og það munum við halda áfram að gera,“ segir Þórdís Kolbrún.

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Lloyd J. Austin, stýrði fundinum en hann sóttu varnarmálaráðherrar og yfirmenn herafla þátttökuríkjanna. Varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksii Reznikov, ávarpaði fundinn og gerði grein fyrir vígstöðunni í landinu og þörfum úkraínska hersins fyrir stuðning.

  • Þórdís Kolbrún ásamt Oleksii Reznikov, varnarmálaráðherra Úkraínu og Jens Stoltenberg, frkvstj. Atlantshafsbandalagsins. - mynd
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vitni óskast að banaslysi

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Umferðaróhapp – vegi lokað

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Gjöfin sem gleður … eða ekki

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?