Eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á sjöunda árátugnum Einar Júlíusson, lést í faðmi fjölskyldunnar síðastliðna nótt.
Stórsögnvarinn Einar Júlíusson er látinn, 78 ára að aldri. Í tilkynningu frá fjölskyldu Einars segir að hann hafi látist í faðmi fjölskyldunnar síðastliðna nótt.
Einar fæddist í Keflavík 20. ágúst 1944, hann bjó og starfaði þar alla tíð. Einar byrjaði á barnsaldri að syngja, hann var einn af stofnefndum hljómsveitarinnar ástsælu Hljóma og var fyrsti söngvari sveitarinnar.
Hann átti síðan farsælan 23 ára ferill með hljómsveitinni „Pónik og Einar“. Á síðari árum lagði hann áherslu á einsöng, þar sem hann söng við ýmsar athafnir. Einar söng á hljómplötu með Ellý Vilhjálmsdóttur og varð sú plata mjög vinsæll.
Fræg lög sem Einar söng voru til dæmis lögin Brúnu ljósin brúnu, Léttur í Lundu og Viltu dansa.
Umræða