Starfsgreinasamband Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins til Ríkissáttasemjara. Í tilkynningu segir m.a. að Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins hafi átt í viðræðum um nýjan kjarasamning frá því í október 2018. Á þeim tíma hafi aðilar átt tæplega 80 fundi um sértæk mál, sem og hátt í 30 fundi viðræðunefnda SGS og SA, um forsendur og innihald nýs kjarasamnings.
„Ýmislegt hefur þokast áfram á undangegnum vikum í einstökum málum og umræðugrundvöllur til staðar á öðrum sviðum. Þrátt fyrir það er það mat viðræðunefndar Starfsgreinasambandsins að nú verði ekki komist lengra nema með aðkomu ríkissáttasemjara að deilunni, sem er eðlilegt skref í áframhaldandi vinnu,“ segir í tilkynningunni.
Umræða