,,Ég er að hugsa um að leigja íþróttasalinn á Hrafnagili í eitt eða tvo skipti fram að opnun veiðitímabilsins og langar mig að kanna hvort einhver áhugi væri hjá norðlendingum að mæta. Þarna má æfa fluguköst í tvo tíma, í tvö skipti og við værum þá að tala um einhvern tímann um helgi. Þannig að sem flestir gætu séð sér fært að mæta“ sagði Ólafur Sigurðsson á Akureyri og hann vill endilega efla veiðisamfélagið á svæðinu.
,,Það er um að gera að skerpa aðeins kasttækina og æfa sig að kasta lengra fyrir komandi veiðitímabilið, sem styttist verulega í “ sagði Ólafur sem vill fá veiðimenn til að æfa með sér. ,,Fyrsta og þriðja helgin í mars eru líklegastar.“Segir Ólafur.
Þetta er auðvitað snilldar hugmynd hjá Ólafi og þarna geta menn kastað og sagt kannski eina og eina veiðisögu fyrir sumarið. Allt þetta styttir biðina.
Mynd. Ólafur Sigurðsson með bolta sjóbirting úr Eyjafjarðará.