• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stafrænt ferli almenns ökunáms

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Undanfarið hefur verið unnið hörðum höndum að því markmiði að gera umgjörð fyrir almennt ökunám (B-réttindi) stafræna, allt frá upphafi og fram að verklegu ökuprófi, fyrst og fremst með hagsmuni ökunema fyrir augum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samgöngustofu og FÍB vekur athygli á málinu. Stafrænt ferli ökunáms mun jafnframt efla þjónustu og létta lífið fyrir aðra sem að því koma, eins og ökukennara, ökuskóla og aðstandendur ökunema. Þar sem verkefnið er afar umfangsmikið er því skipt í nokkra áfanga. Með hverjum áfanga færist ferlið stöðugt nær því markmiði að verða að fullu stafrænt frá upphafi til enda. 

Í fyrsta áfanganum er áhersla lögð á einföldun og bætta þjónustu við ökunema við afgreiðslu umsókna og útgáfu stafræns bráðabirgðaökuskírteins. Þá munu ökunemar geta hafið ökunám með rafrænni umsókn í gegnum Ísland.is í stað umsókna á pappír.

Því til viðbótar verða námslok ökunema staðfest á stafrænan hátt sem tryggir að ökunemar geta nálgast stafrænt bráðabirgðakökuskírteini um leið og þeir hafa staðist verklegt ökupróf og náð 17 ára aldri. Áætlað er að fyrsta áfanga ljúki á vormánuðum.

Annar áfangi er beint framhald af vinnu við fyrsta áfanga. Að öðrum áfanga loknum verður stafræn ökunámsbók orðin að miðpunkti ökunámsferilsins. Þar verður námsframvinda ökunema skráð og munu ökukennarar, ökuskólar, ökugerði, próftökumiðstöðvar og aðrir hagsmunaðilar geta skráð upplýsingar jafnóðum í lausnina á rafrænan hátt. Gert er ráð fyrir að þessi áfangi náist í sumarlok.

Þriðji og síðasti áfanginn felst svo í að færa bóklega próftöku yfir á rafrænt form ásamt allri umsýslu í kringum ökupróf. Áætlanir gera ráð fyrir að þessi áfangi náist fyrir áramót.

Stafræn umgjörð um ökunám er viðamikið umbótaverkefni sem felur í sér tækifæri til að stórefla opinbera þjónustu. Er það unnið í samstarfi Samgöngustofu og innviðaráðuneytis við Stafrænt Ísland, Ríkislögreglustjóra og sýslumannsembætti, en að auki er fyrirhugað samráð við ýmsa hagaðila.

Umræða
Share11Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?