Upphaf nýrra tíma – Uppskeru- og baráttuhátíð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, setti fyrsta landsþing flokksins í Hörpu klukkan tíu í morgun. Yfirskrift þingsins er upphaf nýrra tíma.
Sigmundur Davíð sagði það hafa verið ótrúlega skemmtilegt að starfa fyrir Miðflokkinn og hópurinn væri alveg einstakur. Fyrsta flokksþing sé í raun uppskeruhátíð en líka baráttuhátíð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Miðflokkurinn ætli sér að innleiða nýja tíma í íslensk stjórnmál.
Núverandi ríkisstjórn snúist bara um stólana og um það að gera ekki neitt annað en að halda í völd og stóla og að hún sé stefnulaus með öllu og hafi enga framtíðarsýn.
Ríkisstjórnin stefni á met í eyðslu fjármuna ríkisins og treysti á áframhaldandi hagvöxt og að hún standi vörð um stór gallað kerfi í stað þess að nota tækifærið og ráðast í breytingar eins og til dæmis í heilbrigðiskerfinu.
Sigmundar Davíð sagði að stefnuræða sín á morgun yrði óhefðbundin og nefndi að miklar breytingar væru framundan og kvaðst vilja endurvekja virkni lýðræðisins því það virkaði ekki lengur eins og lagt var upp með. Sigmundur fjallaði mikið um lýðræðið og fólk ætti að hafa tekið eftir því að litlar breytingar væru sama hvaða flokkar kæmust til valda. Lýðræðið virkaði ekki sem skyldi og eitt skýrasta dæmið væru núverandi stjórnvöld sem hafa 52% fylgi þjóðarinnar. Þau hefðu myndað bandalag um að skipta stólunum og gefa eftir sín áherslu- og kosningamál. Miðflokkurinn ætlar sér ekki að lofa neinu fyrir kosningar sem hann treystir sér ekki til að efna, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson m.a. Hann segir fyrsta landsþing flokksins sem hófst í dag vera sögulegt fyrir flokkinn og fyrir íslensk stjórnmál. Miðflokkurinn ætli að innleiða nýja tíma í íslensk stjórnmál.
Oddvitar Miðflokksins á höfuðborgarsvæðinu með formanninum