Fjórir voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 27. apríl á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gærkvöld.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
https://gamli.frettatiminn.is/21/04/2023/mannslat-fjoldi-stunguaverka-meintir-gerendur-a-taningsaldri/
https://gamli.frettatiminn.is/21/04/2023/mannslat-fjorir-i-haldi-logreglu-vegna-rannsoknar/
Umræða