• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

GARÐABÆJARSAMFÉLAGIÐ

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

GARÐABÆJARSAMFÉLAGIÐ

​

Ágúst Karlsson sem skipar 19. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ, skrifar.

Afgerandi þættir í komandi kosningum til sveitastjórna, nú sem áður, eru umræður og áróður um eigið ágæti, en einnig um vanhæfi mótherjanna. Margt gott hefur verið framkvæmt af fyrrverandi bæjarstjórnum. Það þýðir samt sem áður ekki að mörg málefni hafi mátt betur fara.
Miðflokkurinn ætlar að ná til fjöldans með stefnumálum sínum, m.a. í félagslegum málefnum og væntir góðs árangurs. Miðflokkurinn höfðar því til bæjarbúa í komandi kosningum og bæjarbúar einnig til Miðflokksins.
Meðal helstu áherslumála má nefna aukin atvinnutækifæri innan bæjarmarkanna. Núverandi staða er þannig að langstærstur hluti vinnandi fólks sækir atvinnu sína í önnur bæjarfélög. Þessu væri æskilegt að breyta enda eykur það sjálfbærni bæjarins.
Nýtt sjúkrahús við Vífilstaði myndi breyta þar miklu, en einnig væri æskilegt að stuðla að myndun smærri fyrirtækja í léttum iðnaði, framleiðslu og þjónustu. Öflugra skólastarf á breiðum grunni er einnig ofarlega á stefnuskrá. Greiða þarf götu unga fólksins með tilliti til fastrar búsetu með beinni eða óbeinni fjárhagslegri fyrirgreiðslu varðandi íbúðarhúsnæði.
Bæjarsjóður er vel stæður fjárhagslega. Það er augljóst mál að auka má margháttaða þjónustu við eldri borgara, gamalgróinna íbúa bæjarsins, sem byggt hafa bæinn frá grunni og stuðlað að velgengninni með framlagi sínu til bæjarsjóðs og bæjarmálanna.
Við sem byggðum bæinn upp frá upphafi teljum okkur eiga að njóta ávaxtanna. Við viljum auka þjónustustig við þá sem vilja búa sem lengst heima hjá sér, enda sparar það hjúkrunarrými fyrir aldraða og þar með bæjarfélaginu stórar fjárhæðir.
Nefna mætti þar t.d. hjálp við viðhald lóða og garða, enda stuðlar það að fegurra umhverfi. Eins mætti nefna einstaklingsmiðaða heimahjúkrun eða vitjanir hjúkrunarfræðinga þar sem það á við.
Þessu ætlar fulltrúar Miðflokksins að vinna að og framkvæma þegar þeir fá aðstöðu til í bæjarstjórninnni.
Ágúst Karlsson skipar 19. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?