Hestaeigandi sviptur ellefu hrossum
Matvælastofnun hefur tekið 11 hross úr vörslu umráðamanns á bæ á Suðurlandi. Ástæða vörslusviptingar er að kröfum stofnunarinnar um bætta fóðrun hefur ekki verið sinnt.
Undanfarna mánuði hefur Matvælastofnun ítrekað gert kröfu um bættan aðbúnað hrossa á bænum, flokkun hrossa eftir holdafari og sérstaka fóðurgjöf til þeirra sem mest þurfa á því að halda, án árangurs.
Talin var hætta á varanlegum skaða ef fóðrun hrossa og aðstæður þeirra yrðu ekki bættar. Hrossin voru tekin úr vörslu umráðamanns og verða þau fóðruð á kostnað hans.
Áfram er gerð krafa um bætta aðstöðu á bænum þannig að öllum hrossum sé tryggður nægur aðgangur að fóðri.
Umræða