Ný gögn sýna glögglega það ris sem er að eiga sér stað
Ný gögn komu fram úr Sentinel-1 interferogram frá seinustu 12 dögum eða frá 7.-19. maí 2022. Þar sést nokkuð glögglega það ris sem er að eiga sér stað í kringum Svartsengi, en það mælist 2-2,5 sm á tímabilinu.
Langflestir skjálftar undanfarna tvo sólarhringa hvafa verið á svæðinu. Fjöldi skjálfta skv. Veðurstofu: Stærð minni en 1 alls: 181 Stærð 1 til 2 alls: 167 Stærð 2 til 3 alls: 39 Stærri en 3 alls: 6 Samtals: 393
Umræða