Einn er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í Úlfarsárdal í dag, en tilkynnt var um árásina um þrjúleytið.
Um var að ræða átök manna utandyra í hverfinu, en málsatvik eru um margt óljós á þessu stigi. M.a. um áverka brotaþola.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi og naut embættið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðirnar.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða