Sparisjóður Vestmannaeyja var yfirtekinn á undirverði
Eins og þekkt er hefur Vestmannaeyjabær staðið í málarekstri gagnvart Landsbanka Íslands frá því að bankinn tók yfir rekstur Sparisjóðs Vestmannaeyja sem var þá að stóru leyti í eigu íbúa Vestmannaeyja. Eftir umtalsverðan þrýsting voru loks skipaðir dómskvaddir matsmenn og nú liggur niðurstaða þeirra fyrir.
Í stuttu máli er niðurstaða hinna dómskvöddu matasmanna sú að verðmæti eigin fjár SPV hafi verið 483 milljónir króna þegar sjóðurinn var yfirtekinn. Landsbankinn greiddi hinsvegar einungis 332 milljónir fyrir eigið fé SPV þannig að mismunurinn (auðgun Landsbankans á kostnað stofnfjáreigenda) er því 151 milljón kr. eða 45% af greiddu verði.
Í matsgerð hinna dómskvöddu matsmanna kemur fram að þeim hafi verið viss vandi á höndum þar sem Landsbankinn veitti ekki fullan aðgang að bókhaldi og afmáði persónugreinanlegar upplýsingar um lántaka.
Eftir sem áður telja þeir sig þó geta komist að forsvaranlegri niðurstöðu um mat útlána, þó að óheftur aðgangur hefði styrkt forsendur matsins.
Allt að einu, þá liggur fyrir ítarleg matsgerð um það að Landsbankinn greiddi stofnfjáreigendum of lítið fyrir þau verðmæti sem voru fyrir hendi í SPV.
Eftir stendur að telja verður sanngjarnt og eðlilegt í ljósi niðurstöðu matsmanna að Landsbankinn greiði stofnfjáreigendum -sem að stóru leyti eru heimilin í Vestmannaeyjum- í samræmi við niðurstöðuna.
Þar sem undirritaður er á seinasta degi starfs sín sem bæjarstjóri vil ég samhliða þessari tilkynningu þakka fjölmiðlum samstarfið á seinustu 12 árum. Það er ánægjulegt að seinasta opinbera verki mitt sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum sé að tilkynna sigur í máli sem snertir hagsmunagæslu fyrir Vestmannaeyjar og íbúa þar.
Elliði Vignisson, Vestmannaeyjum