• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Spáð allt að 20 stiga hita

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. júní 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Í dag er útlit fyrir norðan og norðvestan 3-8 m/s. Búast má við skúrum í flestum landshlutum í dag, síst þó vestast á landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. Vestan 3-8 á morgun, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 17 stig. Norðlægari með svolítilli rigningu austanlands framan af morgundegi og svalara, en rofar til þar seinnipartinn. Á sunnudag og fram í miðja næstu viku er útlit fyrir að vestlæg átt verði ríkjandi og hlýr loftmassi færist yfir landið. Það verður þá bjart og hlýtt á austanverðu landinu og kominn tími til, á þeim slóðum hefur verið sólarlítið það sem af er sumri og hiti með lægra móti. Vestanlands verður meira og minna skýjað og einhver væta eftir helgi. Sú væta er líkleg til að vera á formi súldar og ekki rigning nema að litlu leyti. Ekki er víst að úrkomumagnið verði nægjanlegt til að bleyta almennilega í þurrum gróðri eða hressa upp á vatnslitlar laxveiðiár.
Besta veðrið virðist ætla að verða um og eftir helgi fyrir austan þar sem að er spáð allt að 20 stiga hita á austanverðu landinu og háar hitatölur verða einnig á Suðurland.
Veðurhorfur á landinu
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skúrir í flestum landshlutum í dag, en úrkomulítið vestantil. Bjart að mestu sunnan- og vestanlands á morgun og þurrt að kalla. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi. Spá gerð: 21.06.2019 09:07. Gildir til: 23.06.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag og mánudag:
Suðvestan 5-10 og víða léttskýjað, en skýjað að mestu vestanlands. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast um landið austanvert.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Ákveðin vestanátt. Skýjað á vesturhelmingi landsins og dálítil rigning eða súld af og til. Hiti 10 til 14 stig. Bjartviðri austantil með hita 15 til 20 stig.
Á fimmtudag:
Vestanátt framan af degi en gengur í norðan 5-10 síðdegis. Líkur á dálítilli rigningu eða súld í flestum landshlutum. Kólnandi veður.
Spá gerð: 21.06.2019 07:40. Gildir til: 28.06.2019 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?