• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lífshættulegt er að stíga út á hraunið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Tilkynning frá lögreglu

Lífshættulegt er að stíga út á hraunið. Farið því aldrei út á hraunið.

Leið A upp að gosstöðvum er lokuð. Fara þarf leið B sem er lengri og erfiðari og ekki fyrir óvana göngumenn. Ekki sést í eldtungur úr gígnum ef leið B er valin. Gangið frekar suður fyrir Borgarfjall og inn að Nátthaga og lítið þar rennandi hraunið augum. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.

Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun. Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum. Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað.

Bílastæði:
Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri.

Gönguleið:
Áætla má að gangan taki 3-4 klst. fram og til baka fyrir meðalvant göngufólk. Gönguleiðin er stikuð og greinileg en hefur reynst mörgum erfið. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði.
Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn. Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis.

Loftmengun:
Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun:
unnan 13-18 m/s og rigning svo gasið berst til norðurs og gæti mælst á Vatnsleysuströnd, þó í litlu magni í svo hvössum vindi. Suðvestan 5-10 í nótt og skúrir eða dálítil súld.

Vestanátt á morgun en norðvestan 3-8 annað kvöld. Gas berst þá til austurs og suðausturs frá gosinu.

Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:
• Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum.
• Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.
• Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
• Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
• Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi.
• Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni.
• Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tónlistarmiðstöð formlega stofnuð og ný stjórn kynnt

    Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Húsleit í miðborginni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?