Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna hjólreiðamanns
Löng röð bíla beið við Hvalfjarðargöng í hádeginu en göngunum var lokuð vegna hjólreiðamanns sem ákvað að fara í gegnum þau.
Bannað er að fara í gegnum göngin á reiðhjóli og á hjólreiðamaðurinn von á sekt og / eða kæru.
Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum á nýjan leik
Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum á nýjan leik, að þessu sinni vegna umferðaróhapps.
Tilkynning birtist á síðu Vegagerðarinnar kl 12:58 þar sem fram kemur að göngunum hafi verið lokað vegna umferðaróhapps. Samkvæmt heimildum Vísis sáu sjónarvottar lögreglubíla, fjóra sjúkrabíla og slökkviliðsbíl á hraðferð frá Kjalarnesi í átt að Skaganum.
Umræða