Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS Delaware kom í gær í íslenska landhelgi og sást m.a. vel frá Reykjavík og Hafnarfirði þar sem hann var stutt frá landi. Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum frá ytri mörkum landhelginnar í Stakksfjörð, nærri Keflavík og nokkra kílómetra utan við Helguvík, þar sem áhafnarmeðlimir voru teknir um borð í kafbátinn.
Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.
Þetta er í annað sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl sl. að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og bera slíkir kafbátar ekki kjarnavopn.
Nánar um þjónustuheimsóknirnar: https://www.stjornarradid.is/…/Bandariskir-kafbatar-i…/
Umræða